MATUR & VÍN

DILL byggir á norrænni hugmyndafræði í matreiðslu og leggur áherslu á hráefni og hefðir frá Íslandi.

 Einfaldleikinn er lykillinn til að leyfa hráefninu að njóta sín, einstakt eins og íslenska landið. Matur okkar segir sögu náttúru okkar og bænda sem hafa ræktað garðinn sinn kynslóð eftir kynslóð.

DILL leggur ríka áherslu á lífræn vín sem parast einstaklega vel með okkar mat.

 

 DILL matseðill 39.900 kr

Vín og drykkjar pörun 21.300 kr

Blönduð pörun 19.300 kr

Áfengislaus pörun 13.900 kr

 

Sökum þess hvernig matseðilinn okkar er uppsettur og allri þeirri vinnu sem fer í að búa hann til getum við því miður ekki boðið upp á matseðil án mjólkurafurða. Við reynum okkar allra besta til að koma á móts við gesti með ofnæmi, svo framarlega sem við erum látin vita með góðum fyrirvara.